AÞ-Þrif

Umhverfisstefna

AÞ Þrif sinnir reglulegum ræstingum, hreingerningum, gólfviðhaldi og tengdum
verkefnum. Fyrirtækið hefur sett sér stefnu í umhverfismálefnum og byggir á
gildum félagsins, fagmennsku, þjónustulund og heiðarleika. Stefna þessi nær yfir
alla starfssemi AÞ Þrif og starfsmanna fyrirtækisins.

Umfang

AÞ Þrif tryggir að starfsemi þess uppfylli kröfur viðeigandi laga og reglugerða.
Auk þess skuldbindur fyrirtækið sig til þess að innleiða og viðhalda stjórnkerfi
sem uppfyllir kröfur eftirfarandi staðla:

  • ISO 14001:2015 – fyrir umhverfið
  •  Svansvottun

 

Stefnan

  • Við þekkjum áhrif okkar á umhverfið og eflum umhverfisvitund starfsfólks
  • Við stýrum verkferlum og efnanotkun fyrirtækisins með því markmiði að
    minnka þau áhrif sem fyrirtækið hefur á umhverfið
  • Við höfum mælikvarða á mikilvæga umhverfisþætti til þess að
    o koma í veg fyrir mengun
    o vernda umhverfið
    o draga úr kolefnisspori rekstursins

 

Framkvæmd stefnunnar

Stjórnendur bera ábyrgð á framkvæmd stefnunnar með því að:

  • Styðja og þjálfa starfsmenn og upplýsa þá um skuldbindingar fyrirtækisins
    og hlutverk þeirra í að uppfylla þær
  • Halda áfram þeim umbótum sem stuðla að bættu umhverfi
  • Kynna umhverfisstefnuna opinberlega, tryggja að henni sé fylgt og að hún sé aðgengileg öllum

Allir starfsmenn fyrirtækisins bera ábyrgð á framkvæmd stefnunnar með því að:

  • Taka þátt í viðeigandi fræðslu og þjálfun
  • Vinna eftir þeim verkferlum sem fyrirtækið setur

 

Umhverfisstefnan er í stöðugri þróun og endurskoðuð árlega.