DAGLEGAR RÆSTINGAR
Hreint og snyrtilegt vinnuumhverfi stuðlar að meiri starfsánægju og vellíðan starfsfólks.
Við bjóðum upp á daglegar ræstingar í stórum sem smáum fyrirtækjum og stofnunum, allt frá litlum skrifstofum upp í
stórar verslanir og skóla.
Með yfir 250 starfsmenn og áratuga reynslu höfum við burði til að sinna flóknum verkefnum af öryggi og fagmennsku.
Sérsniðin þjónusta
Við gerum nákvæma ræstiáætlun sem tekur mið af álagi og starfsemi þíns fyrirtækis.
Svansvottun og umhverfi
Við notum eingöngu viðurkennd, umhverfisvæn efni án skaðlegra ilmefna og óþarfa aukefna.
Heildarlausn
Við sjáum um innkaup á hreinlætisvörum og útvegum tuskur og viskustykki ásamt þvotti.
Skrifstofuþrif
Kaffistofur og snyrtingar
Gólfþrif og rykhreinsun
Sorphirða
Hreinlætisvörur

FAGMENNSKA frá árinu 2006
AÞ-Þrif hóf störf árið 2006 og hefur síðan þá fest sig í sessi sem eitt öflugasta hreingerningafyrirtæki landsins. Við skiljum að byggingarverktakar þurfa áreiðanlegan samstarfsaðila sem mætir á svæðið og klárar verkið af metnaði. Við leggjum áherslu á metnað, gæði og framkvæmdagleði í öllum okkar verkum, stórum sem smáum.

Svona virkar þetta
Mat á verkefni
Við aðlögum umfang þjónustunnar að þörfum viðskiptavinarins, stærð húsnæðis og tíðni þrifa.
Áætlunagerð
Við útbúum verkáætlun sem hentar þínum þörfum.
Hreint vinnuumhverfi
Við sjáum um ræstingarnar svo vinnuumhverfið sé ávallt hreint og snyrtilegt.
Algengar spurningar
Hvaða tíma dags fara þrifin fram?
Það er algjörlega undir þér komið. Við bjóðum upp á þrif snemma á morgnana, á vinnutíma eða eftir að vinnudegi lýkur.
Hvað ef það vantar eitthvað eða við höfum athugasemdir?
Við leggjum mikla áherslu á góð samskipti. Þú færð úthlutað þjónustustjóra sem er þinn tengiliður og bregst fljótt við öllum fyrirspurnum.
Sjáið þið um að panta sápur og pappír?
Já, við getum boðið upp á heildarlausn þar sem við sjáum um að birgja vinnustaðinn upp af öllum nauðsynlegum hreinlætisvörum.
