Um okkur
Metnaður, gæði og fagmennska frá árinu 2006


AÞ-Þrif er öflugt hreingerningafyrirtæki sem hóf formlega störf árið 2006 . Fyrir þann tíma hafði fyrirtækið starfað um nokkurra ára skeið á nafni Arnars Þorsteinssonar, sem er stofnandi og eigandi fyrirtækisins ásamt Hrund Sigurðardóttur og Bjarki Þorsteinssyni.
Í dag starfa um 250 manns hjá fyrirtækinu sem hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta og öflugasta ræstingafyrirtæki landsins. Við bjóðum upp á alhliða þjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga þar sem persónuleg þjónusta og fagmennska eru í fyrirrúmi. Að baki fyrirtækisins stendur þéttur hópur fólks sem hefur byggt upp það trausta orðspor sem við njótum í dag.

Jafnréttisáætlun & Vinnustaðamenning
AÞ-Þrif kappkostar að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði er virt í hvívetna . Við vinnum markvisst að því að jafna stöðu kynjanna, koma í veg fyrir hvers kyns mismunun og tryggja að framlag hvers og eins sé metið að verðleikum.
Great Place to Work: Við erum stolt af því að vera vottaður vinnustaður af Great Place to Work síðan 2023.
Jafnlaunavottun: Fyrirtækið fylgir kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 til að tryggja sanngjörn launakjör.
Framúrskarandi fyrirtæki:
AÞ-Þrif hefur hlotið viðurkenningu CreditInfo sem Framúrskarandi fyrirtæki á hverju ári frá 2017.

















