GLUGGAÞVOTTUR
Hreinir gluggar bæta ásýnd bygginga og hleypa meiri dagsbirtu inn í vinnuumhverfið.
AÞ-Þrif býður upp á alhliða gluggaþvott að utan jafnt sem innan fyrir fyrirtæki, húsfélög og stofnanir.
Hjá okkur starfa reynslumiklir gluggaþvottamenn sem hafa metnað og vönduð vinnubrögð í fyrirrúmi. Við verkin er ýmist notast við stiga, vinnupalla, körfubíla eða lyftur, allt eftir þörfum og aðstæðum.
Innan- og utanhúss
Alhliða þvottur á öllum glerflötum bygginga, hvort sem um er að ræða reglulegt viðhald eða staka hreinsun.
Sérhæfður búnaður
Við höfum yfir að ráða nauðsynlegum tækjum og búnaði til að ná til glugga í mismunandi hæðum og aðstæðum.
Reglulegir samningar
Við bjóðum upp á fasta samninga um reglulegan gluggaþvott sem hentar þörfum hvers viðskiptavinar.

FAGMENNSKA frá árinu 2006
AÞ-Þrif hóf störf árið 2006 og hefur síðan þá fest sig í sessi sem eitt öflugasta hreingerningafyrirtæki landsins. Við skiljum að byggingarverktakar þurfa áreiðanlegan samstarfsaðila sem mætir á svæðið og klárar verkið af metnaði. Við leggjum áherslu á metnað, gæði og framkvæmdagleði í öllum okkar verkum, stórum sem smáum.

Svona virkar þetta
Mat á verkefni
Við metum aðstæður og finnum réttan búnað og lausn.
Framkvæmd
Við finnum tíma sem hentar og tryggjum að verkið sé unnið hratt og vel.
Hreinir gluggar
Betri ásýnd, bjartara umhverfi og óhindrað útsýni.
Algengar spurningar
Þvoið þið glugga í mikilli hæð?
Já, við sérhæfum okkur í gluggaþvotti í öllum hæðum og notum körfubíla eða sérhæfða sigvinnu þar sem hefðbundinn búnaður nær ekki til.
Notið þið umhverfisvæn efni?
Já, sem Svansvottað fyrirtæki notum við eingöngu viðurkennd og umhverfisvæn hreinsiefni.
Er hægt að fá gluggaþvott sem hluta af daglegri ræstingu?
Já, við getum samþætt gluggaþvott við aðra þjónustusamninga okkar eftir þínum þörfum.
