Gleðilegt ár

Við viljum óska viðskiptavinum okkar sem og öðrum gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir það liðna.

Við kveðjum skemmtilegt og viðburðaríkt ár þar sem verkefnin voru mörg að vanda, stór sem smá. Við héldum áfram að stækka við okkur í Skeiðarásnum og er húsnæðið nú orðið samtals 870m2. Í byrjun árs var ráðist í að stækka skrifstofuna enn frekar og kláruðust þær framkvæmdir í lok janúar. Þar bættust við fjórar skrifstofur auk fundarherbergis. Skrifstofan er því orðin töluvert stærri en áður enda hefur starfsmönnum þar fjölgað jafnt og þétt, en í dag hafa þar 14 manns starfsstöð. Í nóvember bættust 300m2 við lagerinn sem er allur að komast í stand en þar inni er komin upp aukin aðstaða fyrir mygluþrif og hreinsun sjúkratækja. Til gamans má geta þess að ekki eru nema rétt tvö ár síðan húsnæðið taldi um 200m2 sem er ótrúlegt að hugsa til.

Í mars festum við kaup á öðru ræstingafélagi sem hefur verið markmið okkar lengi. Með félaginu fylgdu um 55 starfsmenn og margir nýir viðskiptavinir. Þetta ferli hefur verið afar lærdómsríkt og höfum við öðlast góða reynslu sem við munum búa að við frekari kaup í framtíðinni.

Viðskiptin hafa blómstrað á árinu á öllum sviðum, þá helst í sérverkefnum eins og gluggaþvotti, iðnaðarþrifum, mygluhreinsun og gólfþrifum. Fjöldi starfsmanna náði hámarki í sumar þegar um 220 manns voru á skrá hjá okkur. Í haust kvöddum við Flugstöðina í kjölfar útboðs, sem hefur verið okkar stærsta verkefni í ræstingu síðustu þrjú árin. Flugstöðin var umfangsmikið og krefjandi verkefni sem við erum þakklát fyrir að hafa fengið að takast á við. Við erum reynslunni ríkari og fengum gott innlegg í reynslubankann.

Að vanda var mikið um viðburði á vegum starfsmannafélagsins, en þar má m.a. nefna hið árlega Páskabingó, Diskókeilu, Halloween partý, Fjölskyldubíó, Jólahlaðborð og svo síðast en ekki síst árshátíð sem var að þessu sinni haldin í Bratislava í Slóvakíu. Sú ferð heppnaðist einstaklega vel en þetta er í fyrsta skipti sem AÞ-Þrif heldur árshátíð erlendis.

Við vonum að árið 2018 verði öllum gott og gæfuríkt,

Gleðilegt ár

Bjarki Torsteinsson, issued by DNV-GL. Certifies personnel certification according to DB/INSTA 803:2018, Knowledge Level 3.
Eftir Hrund 15. janúar 2020
AÞ-Þrif hefur fengið INSTA 800 vottun – gæðamiðað kerfi sem gerir gæði ræstinga mælanlegar og tryggir sameiginlegan skilning allra aðila.
Brosandi gult andlits-emoji með svörtum augum og breitt bros á hvítum bakgrunni
Eftir Hrund 31. mars 2019
AÞ-Þrif tileinkuðu febrúar heilsunni með fyrirlestrum um næringarfræði og fleiru skemmtilegu. Kynntu þér hvernig við hlúum að starfsfólki okkar.
Brosandi gult andlits-emoji með svörtum augum og breitt bros á hvítum bakgrunni
Eftir Hrund 11. mars 2019
Þann 8. mars voru tólf starfsmenn AÞ-Þrif heiðraðir fyrir starfsaldur – fyrir 3, 5 og 10 ára starf. Til hamingju með áfangann!
Brosandi gult andlits-emoji með svörtum augum og breitt bros á hvítum bakgrunni
Eftir Hrund 22. september 2018
AÞ-Þrif hélt vinnufund með leynigesti, Reykjavík Escape og kvöldmat. Frábær dagur sem styrkte samheldni liðsins.
Fólk situr við langt borð í björtum mötuneyti, borðar saman og brosir til myndavélarinnar.
Eftir Hrund 15. júní 2018
AÞ-Þrif fagnuðu HM 2018 með grilli og góðum stuðningi. Allir starfsmenn saman að hvetja íslenska landsliðið áfram
Nútímaleg skrifstofubygging úr gleri með bílum sem lagt er og gangbraut á landslagssnyrtingu háskólasvæðisins
Eftir Hrund 9. maí 2018
AÞ-Þrif tók við daglegri ræstingu í Smáralind og Egilshöll frá 1. maí. Spennandi ný verkefni og vöxtur hjá fyrirtækinu.
Hópur fólks stendur innandyra fyrir framan skilti og stillir sér upp fyrir myndatöku.
Eftir Hrund 21. mars 2018
AÞ-Þrif veitti starfsmönnum viðurkenningar fyrir 3, 5 og 10 ára starfsaldur. Þakklæti fyrir hollustu og tryggð við fyrirtækið.
Tveir menn í verkstæði, annar heldur á pappaöskju og hinn á skírteini, báðir brosandi.
Eftir Hrund 14. febrúar 2018
AÞ-Þrif hélt fyrstu heilsuviku sína með fyrirlestrum og áskorunum frá crossfit-þjálfara. Heilsa starfsfólks í fyrirrúmi
Rauð verðlaunamerki með „2017“ og textanum „Framúrskandi fyrirtæki“ á hvítum hring.
Eftir VISKA 24. janúar 2018
AÞ-Þrif hlaut viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki 2017 – aðeins 2,2% íslenskra fyrirtækja standast þessi skilyrði.